25.01.2012 21:56

12 Dagar í fyrstu festuna

Þar sem það eru bara tólf dagar í fyrstu festuna í Hreppnum er við hæfi að henda inn einu video-i frá SledHead 24-7. Þetta lítur bara hrikalega vel út. Eina sem ég hóstaði aðeins yfir er að við verðum í 12 til 14 þúsund feta hæð (3600m til 4200m). M.v. upplýsingar á vísindavefnum eru líkur á að einn af okkur fjórmenningunum gæti fengið væga háfjallaveiki, þ.e.a.s. ef við förum ekki á rúntinn upp í fjall dagana áður en við förum að keyra.


18.12.2011 21:03

Nú kom að því

Það hefur viðrað til sleðaakstur um helgina, ekki mikill snjór kominn en þó til að þvælast um. Ég henti mér upp í skórægt til að finna smá púður þar sem allt var ber rifið annars staðar. Ég og Ingi tókum síðan rúnt upp á Grænafell eftir að það var orðið dimmt. 



Levi var að kynna Red Bull stökkið um áramótin hjá Leno og tók smá sýningu í leiðinn. 

14.12.2011 22:20

Þetta er bara rugl

Þetta hlítur að veraemoticon alveg geggjað

13.12.2011 22:11

Testfæri

Það gaf loksins til að taka tugguna út í smá hring, endaði með að flækjast í trjánum í hverfinu en engar festur samtemoticon

Helgin var öflug fyrir norðan, vantar samt að menn hendi myndum helgarinnar inn á sleðasíðurnar, allar myndir að þvælast inn á Facebook þar sem enginn eremoticon

Icehobby var með sýningu á Arctic Cat 2012 á laugardaginn við Kaffi Akureyri, ég missti mátulega af því, kom 10mín í 20 og þá var verið að ganga frá. Icehobby fær verðlaun fyrir lélegt PR, þar sem eftir mikla leit að auglýsingum þá fann ég það inn á Facebook síðunni hjá þeim, ekkert á Lexa, Jonna, Icehobby eða bara einhvernstaðar annarstaðar en á Smettinuemoticon Hefði alveg verið til í að skoða sleðana aðeins betur. 

En þetta kemur allt saman, meðfylgjandi er síðan mynd af flotanum hjá Chris Burandt, svona til gamans, ansi verklegur. 


    Flettingar í dag: 46
    Gestir í dag: 14
    Flettingar í gær: 70
    Gestir í gær: 18
    Samtals flettingar: 162311
    Samtals gestir: 36501
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:29:37