Færslur: 2012 Febrúar
23.02.2012 16:48
Næsti skammtur
Ég er búinn að henda inn video frá Kjartani af fyrri deginum.
Skrifað af Steinar Ísfeld
19.02.2012 23:52
Fyrsta GoPro videoið
Ég er búinn að setja inn fyrsta GoPro videoið úr ferðinni, en það er frá Inga. Ég setti það undir myndbönd en ég er líka búinn að setja inn á YouTube þar sem myndbandasíðan er ekkert rosalega skemmtileg stundum.
Það er ennþá nóg af efni sem á eftir að vinna og verður það að reytast inn á næstu vikunum
Skrifað af Steinar Ísfeld
12.02.2012 05:48
BBCA dagur 2
Við byrjuðum daginn á að lesta bílana um níu leitið í glaða sólskini og brunuðum síðan upp á bílastæði. Þaðan fór allur hópurinn saman upp í fjall áður en hann skiptist niður minni hópa.
Þessi dagur var aðeins léttari en fyrri dagurinn þó að það hafi verið mikið um festur.
Að reyndi mest á öndununa og leið manni eins og lungun og bringanætluðu að springa eftir góða festu. Einnig hélt maður ekki lengi út í átökunum við sleðan t.d. Í side hill.
Sleðarnir komu nokkuð heilir út úr deginum og fundum við frábært svæði sem Ryan hafði ekki komið á heldur.
Það markverðasta þennan daginn var að við þurftum í skógarhögg til að losa sleðann minn eftir að ég festi hann milli trjáa.
Kjartan festi sleðann sinn ofan á sleðanum hans Hilmars sem var fastur í einni brekkunni. Þetta var til þess að Ryan tók upp myndavélina þar sem hann hafði ekki séð svona aðfarir áður.
Á heimleiðinni hittum við allan hópinn upp ískarði sem við fórum yfir fyrr um daginn. Þar var töluvert bras. Búið var að spóla öllum snjónum úr brekkunnu og var þetta eins og Jackson Hole í lok dags, grjót og ís það eina sem eftir var í brekkunni. Þar voru tveir sleðar úr hópnums hans Chris buffaðir þegar þeir keyrðu á grjót. Þurfti að gera við framfjöðrunina á báðum sleðunum áður en haldið var áfram heim.
Þarna var Hilmar alveg búinn á því eftir daginn og hafði Burandt á orði að hann hafi aldrei séð neinn svona búinn á því.
Þessir tveir dagar eru eitthvað það magnaðasta sem ég hef upplifað í sleðamennskunni og það er alger skilda fyrir alla alvöru sleðamenn að fara í a.m.k. í eina svona pílagrímsferð. Það er á hreinu að ég fer aftur út eins fljôtt og hægt er, helst vil ég fara út einu sinni á vetri
Skrifað af Steinar Ísfeld
09.02.2012 20:55
BBCA dagur 1
Við mættum til Buena Vista um fjögur leitið og skoðuðum okkur aðeins um. Um fimm fórum við síðan upp í gistinguna okkar sem var ekkert slor. En við vorum með 250 fm sumarhús með heitum potti útaf fyrir okkur (potturinn hélt okkur gangandi þessa tvo daga).
Við fórum síðan upp í sveitasetrið hjá Burandt þar sem við borðuðum með hópnum sem keyrði með okkur. En alls voru 11 manns að keyra ásamt Burandt,Skinner og tveimur öðrum með þeim og síðan myndatökumanni frá Schooled hópnum, samtals sextán manns sem skiptust upp í fjóra hópa.
Við mættum kl 9 niður á verkstæði á mánudeginum. Þar var farið í gegnum nokkur atriði og sleðarnir settir í kerrurnar þrjár. Síðan var komið við á skrifstofunni og hópurinn nestaður upp áður en haldið var í fjallið.
Þegar við áttum um 6 mílur í bílastæðið bilaði Fordinn sem var með sleðana okkar þ.a. við þurftum að henda okkur í gallana og fara á sleðunum upp á bílastæði.
Við fórum síðan upp í skóg þar sem við vorum búnir að festa okkur hálf tíma síðar. Eftir klukkutíma keyrslu kom í ljós að mótorpúði var farinn í sleðanum hjá Inga og skipti þá Skinner við Inga og fór með bilaða sleðan niur í bíl.
Einhvernstaðar þarna beygði Hilmar síðan A-arm, en það var alveg hægt að keyra sleðann.
Næst var vaðið inn í vel þéttan skóg og endaði það með brotnum stýrislegg í einum sleðanum og þurfti að draga hann heim. Þarna var klukkan um hálf fjögur og byrjað að moksnjóa. Þarna voru síðustu orkudroparnir kreystir úr mannskapnum í botnlausu púðri, sleðinn hjá mér fór t.td á svarta kaf þarna.
PS. ég er í smá vandræðum með að setja inn myndirnar en þær koma inn fyrr en síðar.
Skrifað af Steinar Ísfeld
- 1
Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 174341
Samtals gestir: 39356
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 21:33:23
